Engin hönnunarverkefni eru jafn persónuleg og heimili. Þar á hver ákvörðun sér rætur í lífssýn og óskum væntanlegra íbúa. Okkar hlutverk er að finna þeim hugmyndum raunhæfan og heilsteyptan farveg og skapa heimili sem varir.

Allt frá fyrsta samtali leiðbeinum við og aðstoðum viðskiptavini við að skerpa á forgangsröðun og taka upplýstar ákvarðanir með sannfæringu. Við hjálpum þeim að sjá möguleikana í hverju rými.

Skýr stefna strax í upphafi og tryggð við þá sýn, ásamt virku samtali í gegnum ferlið, skilar sér í heimili sem er persónulegt og uppfyllir þarfir verkkaupa í bráð og lengd.

ÍBÚÐARHÚSNÆÐI

HVAMMAR

VEÐURHÆÐIN

HÚSTÝPA 2

SVEITASETUR

HÚSTÝPA 1

HÚSTÝPA 3