FJÓSIÐ

Suðurland, 2026

Arkitektar: Arkibygg
Ljósmyndari: Helena Lee

Þegar eigendur Fjósins höfðu samband við okkur höfðu þau búið erlendis í tvo áratugi og voru komin að kaflaskilum í lífinu. Ósk þeirra var að búa nær fjölskyldunni og náttúrunni, en hafa jafnframt greiðan aðgang að þjónustu. Fjósið bauð upp á einmitt þetta – kyrrð og nálægð við náttúruna, ásamt þeim þægindum sem fylgja því að búa nærri þéttbýli. Það besta úr báðum heimum.

Við sáum strax möguleikana í jörðinni, hlöðunni og hinu aflagða fjósi. Hér væri pláss fyrir ýmsa iðju í skemmunni sem var hlaðan og gamla fjósið sjálft gæti orðið að heimili. En eftir því sem hönnunarferlinu vatt fram óx hugmyndin smám saman, langt umfram væntingar viðskiptavinanna, og varð á endanum að rúmgóðu, fallegu heimili sem tekur hlýlega utan um eigendur þess, fjölskyldu þeirra og vini. Sjálf hafa eigendurnir sagt að þeir hefðu aldrei getað ímyndað sér að þessi gamla bygging gæti orðið að því húsi sem hún er í dag.

Það var eigendunum mikilvægt að varðveita byggingarnar og gefa þeim nýtt líf, jafnvel þótt niðurrif og nýbygging hefðu mögulega verið einfaldari kostur. Verkefnið snerist því um að nýta eins mikið af húsunum og hægt var og aðlaga þau að nýju hlutverki. Með staðfastri trú á þessa sýn, og mikilli útsjónarsemi, tókst okkur í sameiningu að gera karakter gömlu húsanna miðlægan í hönnuninni.

Vesturálman sem rís hæst varð að bílageymslu sem nýtist einnig í ýmsa iðju, aðskilinni frá sjálfu íbúðarhúsnæðinu, sem er í austurhlutanum. Pallur austan- og sunnanmegin er yfirbyggður með timburskyggni og skapar góða aðstöðu fyrir útiveru og grillveislur. Rúmgóð opnun er bæði frá stofu og aðalsvefnherbergi út á pallinn sem gefur tengingu við hið náttúrulega umhverfi.

Í hjarta byggingarinnar er opið eldhús-, borðstofu-og stofurými sem hugsað er til samveru með fjölskyldu og vinum. Eldhúsið snýr að austurálmunni miðlægt í húsinu, einnig eru baðherbergin og þvottahús staðsett á því svæði svo allar megin lagnir eru á því svæði. Þetta var ein af mörgum hugmyndum sem Arkibygg lagði til verkefnisins. Í loftinu komum við fyrir ofanljósa lýsingarlausn, með þakgluggum og svokölluðum “sólargöngum” sem endurkasta sólarljósi og færir dagsbirtu inn á baðherbergi og ganga. Með náttúrulegri lýsingunni skapast afslappað og notalegt andrúmsloft. Megin svefnherbergið býður upp á víðsýnt útsýni yfir landslagið. Einnig er í húsinu gestaherbergi sem getur skipts í tvö svefnherbergi þegar þörf krefur.

Ríkuleg dagsbirta flæðir inn í alrýmið í gegnum stóra glugga sem ramma inn útsýnið yfir sveitina, fuglalífi og hestum á beit. Í miðju alrýminu er kamína sem skapar hlýja stemningu og gerir staðinn aðlaðandi fyrir notalega samveru.

Eigendurnir eru í skýjunum með útkomuna. Ekki aðeins hversu hentugt og notalegt nýja heimilið er, heldur líka hversu gefandi og skemmtilegt sköpunar- og framkvæmdaferlið reyndist. Þeir gátu sjálfir lagt töluverða vinnu af mörkum og lærðu heilmikið um leið. Hugmyndir sem kviknuðu útfærðum við í sameiningu og allt birtist þetta í þeirri stefnu sem verkið tók og glæsilegu fullbyggðu verki. Við hjá Arkibygg vorum með í ráðum allt frá upphafi. Við hlustuðum grannt á óskir viðskiptavinanna og sköpuðum með þeim hagnýtt en ekki síður persónulegt heimili, fullt af möguleikum.

Fjósið er notalegt og þægilegt heimili sem heldur vel utan um íbúa sína og gesti þeirra. Það einkennist af ró, þar má slaka á og njóta náttúrunnar og norðurljósanna í fullkominni kyrrð. Aðstaðan er góð til að taka á móti gestum í kvöldverð eða til að njóta daglegs lífs saman í sveitasælunni. Eins og eigendurnir komust sjálfir að orði: “Okkur finnst útkoman frábær og notagildið. Þetta er hús sem heldur virkilega vel utan um okkur.”