Verk sem tengjast menningu og ferðamennsku gera kröfu um sterka faglega sýn af hálfu arkitektsins.

Þetta eru staðir sem eiga að laða fólk að, halda athygli þess og kalla fram eftirminnileg hughrif. En þó svo að hér megi hönnuðurinn sannarlega setja mark sitt á verkið, þá teljum við að sýn hans eigi að taka mið af staðháttum og hinu náttúrulega umhverfi ásamt menningar- og sögulegu samhengi.

Með skýrum áherslum, strax í upphafi verks, vandaðri áætlunargerð og tæknilegri útfærslu, náum við að skapa tímalausa hönnun sem þjónar þörfum gesta, en er einnig í góðu jafnvægi við umhverfi og náttúru.

FERÐAMANNASTAÐIR

BAUGUR BJÓLFS

ORUSTUSTAÐIR