HVAMMAR

Suðurland, 2025

Arkitektar: Arkibygg
Innanhússhönnuðir: Arkibygg
Verktaki: ARNO
Ljósmyndari: Nanne Springer

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Modern house with wooden exterior and large glass entrance, surrounded by greenery and trees, with mountains and cloudy sky in the background.

Hvammar er heilsársbústaður á Suðurlandi, hannaður með sterkri tengingu við landslagið í kring, og með sambúð þriggja kynslóða í huga  – foreldra, þriggja uppkominna barna og barnabarna. Áhersla var lögð á gott flæði milli inni- og útirýma og að heimilið yrði þannig hagnýtt og styddi við fjölskyldulífið.

Viðskiptavinirnir höfðu samband fyrir milligöngu byggingarverktakans, eftir að hafa í gegnum hann kynnst einu af okkar fyrri verkum. Þau hrifust þar af opnu skipulaginu og það varð útgangspunktur okkar við hönnun Hvamma.

Verkefnalýsingin fól í sér að skapa rými fyrir samskipti fjölskyldunnar í hjarta heimilisins: stórt, miðlægt og opið sameiginlegt rými með stofu, eldhúsi og borðstofu. Jafnframt skyldi hver kynslóð hafa sín einkarými.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Modern black and wood house surrounded by green bushes with hills and cloudy sky in background.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Aerial view of a house with a gray metal roof, surrounded by trees and bushes, with a driveway and a small deck with a hot tub.

Við hönnuðum krossásaskipulag þar sem miðlæga sameiginlega rýmið er á mótum ásanna og svefnálmur teygja sig eftir langásnum með opnum göngum.

Stofan opnast til suðurs með stórum glugga sem nær frá gólfi til lofts og býður upp á útsýni til fjalla og yfir kjarri vaxna lóðina. Eldhúsið, sem er skipulagt í kringum stóra eyju, snýr til norðurs og glugginn rammar inn aðkomuna að húsinu og fjarlæga tinda. Fjölskyldan óskaði eftir leiklofti fyrir yngstu börnin yfir eldhúsinu, sem er í sjónrænum tengslum við aðalrýmið fyrir neðan í gegnum innanhússglugga. Borðstofan opnast út á verönd og tengist þannig útiborðsvæði.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Living room with large windows showing outdoor trees, a pink sofa with cushions, a bookshelf, a TV, and a dining table with chairs.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A modern kitchen with a large window overlooking greenery, a black pot on the counter, and black pendant lights hanging from the ceiling.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. An open-concept dining and living room with beige walls, large windows, a wooden dining table with chairs, hanging pendant lights, a wall hanging, and framed pictures.

Á hvorri hlið miðrýmisins eru tvær álmur, hvor með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og baðherbergi, með beinum aðgangi út í garð. Herbergin eru nægilega stór til að rúma kojur, heimaskrifstofu eða aukarúm, allt eftir þörfum fjölskyldumeðlima. Við enda hvers gangs er stór gluggi sem styrkir sjónræn og rýmisleg tengsl við útisvæði.

Fyrir miðlæga rýmið völdum við náttúrulega liti sem undirstrika ríkulegt dagsljósið sem flæðir inn og skapar hlýju og notalegt andrúmsloft á heimilinu. Í einkarýmunum eru djúpir og róandi tónar ríkjandi. Fjölskyldan lauk sjálf við innanhússhönnunina í samræmi við okkar leiðsögn og upphaflegu sýn sem leggur til jafns hagnýti, þægindi og tengingu við náttúruna.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Interior of a modern bedroom with a loft bed, large windows, and a view of the outdoors.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Modern bathroom vanity with a round white vessel sink, a silver faucet, and two wicker planters with green plants.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A modern house with a gray metal roof and wooden exterior walls, surrounded by a gravel driveway and a wooden deck with outdoor furniture, situated amidst a lush green forest.

Staðsetning og afstaða Hvamma á norðvesturhluta lóðarinnar voru vandlega ígrundaðar í því augnamiði að varðveita trén sem fyrir voru á lóðinni og hámarka náttúrulega birtu yfir daginn. Fjölskyldan vildi halda náttúrunni óspilltri til leiks og uppgötvunar fyrir börnin. Gólfsíðir gluggar skapa sterka sjónræna tengingu við landslagið í allar áttir og gera fjölskyldunni kleift að upplifa náttúruna nánast úr hverju horni hússins. Útsýni til Ingólfsfjalls í suðri og Búrfells í norðri mótaði líka heildarskipulagið og staðsetningu hússins.

Samstarfið við fjölskylduna var lykilatriði í þessu verkefni. Það var ánægjulegt að vinna náið með þeim og kynnast þörfum þeirra og óskum. Þannig gátum við tryggt að Hvammar uppfylltu væntingar þeirra um heimili sem styddi við sameiginlegar athafnir, einkalíf og langtímabúsetu. Niðurstaðan er bústaður þar sem þrjár kynslóðir geta notið tengsla við hver aðra, umhverfi sitt og náttúruna.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A modern black house with large windows is set among green trees, with mountains in the background and a partly cloudy sky overhead.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A modern wooden house with a black roof situated in a rural area, surrounded by green trees and open landscape, with mountains in the distance and a cloudy sky overhead.