HÚSTÝPA 3

Sérhannað Einingahús, 2021

Arkitektar: Arkibygg
Verktaki: ARNO

Fá tilboð í sérhönnuð einingarhús á heimasíðu ARNO:

Hústýpa 3 er stærsta hústýpan í seríunni (138 m² brúttó) og hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgott, vel skipulagt heimili með sterka tengingu við útirými og náttúru. Hönnunin sækir, líkt og aðrar hústýpur, innblástur í íslenskt landslag, með skýru formmáli, brotnu þakformi og jarðbundinni ásýnd sem fellur vel að umhverfinu.

Dagsbirta er í forgrunni í allri hönnun hússins, með vel staðsettum gluggum sem tryggja björt og notaleg rými og sterka tengingu við umhverfið.

Efnisval er vandað og tímalaust, þar sem áhersla er lögð á endingargóðar lausnir og hlýlegt yfirbragð.

Hönnunin er hugsuð sem sveigjanlegur grunnur og hægt er að aðlaga stærðir, skipulag og útfærslur að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. 

Húsið er á einni hæð og einkennist af skýru og hagnýtu skipulagi þar sem alrýmið er hjarta heimilisins. Alrýmið er um 44 m² og sameinar eldhús, borðstofu og stofu í opna og bjarta heild.

Stórar gleropnanir tengja rýmið beint við pall og útisvæði, sem gerir húsið sérstaklega hentugt fyrir samveru, gestaboð og daglegt fjölskyldulíf.

Í tengslum við alrýmið er rúmgóð borðstofa, 22 m², sem nýtist vel fyrir stærri matarboð og samverustundir.

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, tvö þeirra 10 m² og eitt 13 m², sem hentar vel sem hjónaherbergi. Tvö baðherbergi, hvort um sig 5 m², auka þægindi og gera húsið vel fallið fyrir fjölskyldur eða gestakomur. Að auki eru forstofa, 6 m², gangar, samtals um 6 m². Hústýpa 3 býður einnig upp á útigeymslu, 9 m², sem tengist útisvæðinu og eykur notagildi hússins enn frekar.

Fá tilboð í sérhönnuð einingarhús á heimasíðu ARNO: