SVEITASETUR
Suðurland, 2025
Arkitektar: Arkibygg
Landslagsarkitektar: Landslag
Innanhússhönnuðir: Rut Káradóttir
Verktaki: Arno
Einingarhús: Arno/ Husline
Heilsárshús í hjarta ósnortinnar náttúru með óhindruðu útsýni til Heklu og Eyjafjallajökuls.
Sveitasetrið var hannað í nánu samstarfi við verkkaupa, hjón sem eru mikið í útivist og vildu skipulag sem hentar vel til að taka á móti gestum, en jafnframt skapa hlýlegt og persónulegt rými í sveitinni. Áhersla var lögð á samspil innan- og útirýma, þannig að náttúran og útsýnið verði hluti af rýmunum.
Í húsinu eru tvær svefnálmur og rúmgott sameiginlegt alrými í miðju, með beinu aðgengi út á verönd í tvær áttir. Í ysta hluta hússins er heimaskrifstofa og bókasafn, þar sem hægt er að draga sig í hlé frá alrýminu. Innanhússhönnunin er mótuð með náttúrulegum efnum og hlýjum litatónum sem endurspegla umhverfið og skapa heildræna upplifun.

