BÍLDUDALSSKÓLI

Nýr leik- og grunnskóli í hjarta þorpsins. Bíldudalur, 2025

Byggingarár: 2023-2025
Hönnunarstjóri og verkefnastjóri: Stefanía Helga Pálmarsdóttir, byggingafræðingur BFÍ (Arkibygg)
Aðalhönnuður: Ástríður Birna Árnadóttir, arkitekt FAÍ (Arkibygg)
Meðhönnuður/co designer: Gingi Teiknistofa -Gunnlaugur Björn Jónsson arkitekt.
Hönnunarteymi: Amélie Scheepers arkitekt, Atli Davíð Smárason byggingafræðingur, Veronika Lomachevska arkitekt og innanhússarkitekt.
Innanhússhönnun: Arkibygg
Þríviddarmyndir: ZenViz


Verkkaupi: Vesturbyggð
Verktaki: Arno.is


Burðarverkfræðingur: Teknik
Lagnahönnuður: Teknik
Raflagnahönnuður: Verkhönnun
Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa
Landslagshönnun: Landmótun

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A view of a small lakeside town with houses, trees, and mountains in the background, seen from across the water.

Bíldudalskóli er nýr leik- og grunnskóli í hjarta þorpsins Bíldudals við Arnarfjörð. Byggingin, sem staðsett er við sjávarsíðuna, er hönnuð til að skapa hlýlegt, heilnæmt og hvetjandi umhverfi fyrir börn til náms og leiks

Ýmsar áskoranir fólust í starfsemi gamla skólans, meðal annars vegna staðsetningar hans í fjallshlíð efst í þorpinu. Þar er hætta á skriðuföllum, auk þess sem kostnaðarsamar viðgerðir vegna loftgæða innanhúss stóðu fyrir dyrum og gamli skólinn og leikskólinn voru ekki að uppfylla núverandi kröfur skólahúsnæðis.
Flutningur á nýjan stað var því bæði öruggari og hagkvæmari lausn fyrir samfélagið, með nýjum skóla verða grunn- og leikskólinn sameinaðir undir einu þaki. Samnýting á milli skólastiga er mikil hagræðing fyrir starfsfólk og nýtingu á sameiginlegum rýmum.
Með nýrri byggingu við sjávarsíðuna sameinast allt skólastarf og íþróttaaðstaða á einum stað, til hagræðis fyrir bæði börnin og fjölskyldur þeirra.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Bright, modern room with large windows overlooking a scenic mountain and lake view, furnished with light wood tables, chairs, and storage units, with two people sitting near the windows.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. A small town by a body of water with mountains in the background, houses, and buildings, some with metal roofs, and a few cars parked near the waterfront. Bíldudalur.

Hugtökin samfélag og heilbrigt námsumhverfi liggja til grundvallar hönnunar Bíldudalsskóla. Við vildum skapa rými sem styður við bæði nám og kennslu, og gefur nemendum tækifæri til að þroskast í góðum tengslum við náttúruna. Öll aðal rými byggingarinna, kennslustofur og sameignlegt rými í miðju byggingarinnar eru með stórum gluggum sem veita útsýni yfir fjörðinn og fylla hjarta skólans náttúrulegri birtu.
Í miðju byggingarinnar er sameiginlegt rými þar neyta börnin máltíða, leggja stund á listgreinar og eiga samverustundir sem styrkja tengsl og samkennd.

Hönnun Bíldudalsskóla miðar öll að því að fella hann sem best að umhverfi sínu. Byggingin stendur á sólríkasta svæði fjarðarins og tengir þorpið, fjöllin og strandlengjuna saman með óhindruðu útsýni. Stærð glugganna og innra skipulag setja ríkulega dagsbirtu í fyrirrúm, og skapa þannig heilnæmt og hvetjandi námsumhverfi. Byggingin er á einni hæð í samræmi við lágreista byggðarmynd þorpsins. Frá aðalgötunni blasir við grænt og gróið þakið, en það ásamt timburklæðningu, fellir bygginguna mjúklega að landslaginu.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Interior of a modern, light-filled children’s classroom or daycare with wooden furniture, including tables, chairs, and a bookshelf, along with pendant lights and a high ceiling.

Skólinn er sérhannaður úr forsmíðuðum timbureiningum. Einingarnar eru verksmiðjuframleiddar, en það tryggði að byggingarefnin væru varin gegn raka og veðri í gegnum allt byggingarferlið. Þessi aðferð auðveldaði skilvirka smíði og samsetningu en jafnframt nákvæmni og gæði í framkvæmdinni, til dæmis við ísetningu glugga og varðandi loftþéttleika. Hér skipti einnig máli að náin samvinna var milli hönnuða, verkfræðinga, verktaka og notenda á öllum stigum máls.

Náttúruleg efni einkenna skólann að innan, svo sem eik í innréttingum og línóleumdúkur á gólfum, sem skapa hlýlegt og rólegt andrúmsloft. Litatónar byggingarinnar eru mildir og innblásnir af umlykjandi gróðri og náttúru. Þannig er stuðlað að ró, jafnvægi og vellíðan nemenda og kennara. Við hönnun hússins var mikilvægt að ná fram góðri hljóðvist með ýmsum tæknilausnum í gólfuppbyggingu, loftakæðningu og uppbyggingu veggja. Í aðalrýminu í miðju hússins hefur hljóðvistarlausnin jafnframt listrænt yfirbragð þar sem mynstur og form hennar sækja innblástur í fjöllin umhverfis Bíldudal.

Bíldudalsskóli er nútímalegur, hlýr og nærandi staður fyrir fólk á öllum aldri. Í honum endurspeglast umhyggja samfélagsins fyrir ungu kynslóðinni. Skólinn er jafnframt dæmi um vandaða hönnun sem fæst með samvinnu, ígrundun og virðingu jafnt fyrir fólki og staðháttum. Þannig má skapa byggingu sem tengir saman bæði land og líf, og á sannarlega heima þar sem hann stendur í hjarta þorpsins.

Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Interior of a modern, bright room with wooden furniture, pendant lights, and large windows showing mountains outside.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Interior of a modern, minimalist room with wooden furniture, hanging spherical ceiling lights, and large windows showing mountains outside.
Arkibygg Arkitektar, Arkitektastofa í Reykjavík. Modern building with wooden exterior in front of a large mountain, with people walking, biking, and sitting on the grass and sidewalk.