ENDURHÖNNUN OG VIÐBYGGINGAR
Hvert hús hefur sína sögu, sinn karakter og möguleika. Að skilja og fullnýta tækifærin sem bygging hefur að geyma, krefst tæknilegrar nákvæmni og útsjónarsemi, auk næmni fyrir byggingasögulegu samhengi hennar.
Við lítum á endurhönnun og viðbyggingar sem tækifæri, ekki aðeins til að stækka og laga, heldur til að bæta. Við kappkostum að kanna allar hugsanlegar leiðir til að rýmka nýtingarmöguleika, aðlaga rými að nútímastöðlum og auka virði byggingarinnar, samhliða því að heiðra söguna og hlúa að þeim verðmætum sem þegar eru til staðar.
Með þeim hætti má ljá eldri byggingum líf og hlutverk, en það er að okkar mati besta leiðin til að varðveita hús – að tryggja þeim áframhaldandi vægi og sess í samfélaginu.

