TÆKNIMINJASAFNIÐ
Seyðisfjörður, 2022
Verkefnið felst í endurhönnun Tækniminjasafns Austurlands á Seyðisfirði, en hluti safnsins skemmdist í stóru aurskriðunni sem féll á bæinn 18. desember 2020. Skriðan, sem er sú stærsta sem fallið hefur í byggð hér á landi, tók með sér tíu hús og eyðilagði í heild eða að hluta, og hamfarirnar leiddu til allsherjar endurskoðunar á hættumati á svæðinu.
Í samráði yfirvalda og Minjastofnunar var ákveðið að Tækniminjasafnið skyldi af öryggisástæðum fært af hættusvæðinu og að Lónsleiru. Hin sögufræga hafnarbygging Angró frá ofanverðri nítjándu öld, varð fyrir valinu sem framtíðarheimili safnsins. Angró á sér ríkulega sögu sem er samofin atvinnusögu Seyðisfjarðar. Húsið var reist sem síldarsöltunar-og íbúðarhús af athafnamanninum Otto Wathne sem oft er nefndur „faðir Seyðisfjarðar“. Húsið hefur síðan hýst margvíslega starfsemi. Angró er svokallað bindingsverkshús sem stóð að hluta á staurum í sjó fram, og er eitt örfárra sjóhúsa sem varðveist hafa hér á landi. Nú verður það flutt á öruggari stað og fengið nýtt hlutverk sem hæfir því einkar vel í ljósi sögunnar.
Varðveisla og endurnýting eru kjarninn í arkitektónískri nálgun verkefnisins. Endurbygging Angró miðast við að varðveita og draga fram þann vitnisburð sem húsið geymir um handverk, iðnaðar- og tæknisögu staðarins, en jafnframt að laga bygginguna að nýju hlutverki. Angró myndar hjarta safnsins og byggingarlag og efnisgerð gamla hússins fær að halda sér að mestu. Út frá því verður reist viðbygging og munu byggingarnar mynda eina heild, sem aftur verður í samfellu við umhverfið: bæinn og höfnina. Við leikum okkur að óljósum mörkum hins innra og hins ytra og fellum safnið að bæjarmyndinni á náttúrulegan hátt. Nútímaleg opin rými með timbur og gler í forgrunni einkenna nýbygginguna, sem þó kallast á við þá eldri í efnisnotkun og formi. Í nýja hlutanum verður meðal annars rými sem nýta má sem fjölnotasal. Við sjáum fyrir okkur að hið nýja Tækniminjasafn verði meðal mikilvægustu kennileita Seyðfjarðar og Austurlands alls og lyftistöng fyrir menningarlífið á svæðinu. Safnið verður vettvangur varðveislu og miðlunar sögu atvinnuhátta og samfélags, en einnig staður fyrir búa jafnt sem gesti til að koma saman, skiptast á skoðunum og móta framtíðina í sameiningu.
Arkitektar: Arkibygg & Gingi Teiknistofa
Meðhönnuður: Gingi Teiknistofa
Skipulagshönnun: Stúdió Jæja
Burðarþols- og lagnahönnun: Verkráð
Raflagnahönnun: Verkís

