VEÐURHÆÐIN

Á tímum stafræns lífsstíls, félagslegrar einangrunar og ófyrirsjáanlegra loftslagsbreytinga höfum við meiri þörf fyrir jarðtengingu og tengingu við annað fólk en nokkru sinni fyrr.

Á Veðurhæðinni viljum við skapa vinalegt og grænt umhverfi sem tengir saman fólk, fyrirtæki og stofnanir í gegnum samvistir, samvinnu og samnýtingu.

Við viljum tengja saman Öskjuhlíð, Hlíðar, Leiti og Kringlu með skemmtilegu hverfi sem býður alla velkomna sem vilja skapa sér heimili og verða hluti af líflegu nágrannasamfélagi. Veðurhæðin verður félagsmiðstöð og tengipunktur á milli þessara hverfa.

Á Veðurhæðinni er sköpuð umgjörð fyrir fólk til þess að temja sér sjálfbæran lífsstíl sem styður við deilihagkerfið. Íbúum er gert auðvelt að lifa á umhverfisvænan hátt sem bætir lífsgæði frekar en að umturna daglegu lífi. Með því að laða að fjölbreytta félagshópa, fyrirtæki og stofnanir verður Veðurhæðin frjór jarðvegur til þess að rækta framtíðarmiðað, mannlegt og sjálfbært samfélag þar sem deilihagkerfið ræður ríkjum.

Á Veðurhæðinni eru íbúar og gestir umvafnir grænu, náttúrulegu umhverfi sem ýtir undir heilbrigðan og hamingjuríkan hversdagsleika. Veðurhæðin býður fólki að umgangast náttúruna á léttan, skemmtilegan og ábyrgan hátt. Veðurhæðin kennir okkur að móta og hlúa að heilbrigðu umhverfi en einnig að okkur sjálfum.

Tenging milli hverfa

Á Veðurhæðinni er kjörið tækifæri til þess að brúa bilið milli aðliggjandi hverfa sem í dag eru slitin sundur af umferðarþungum götum. Borgarlínan mun liggja við hliðina á Veðurhæðinni sem einnig styrkir vistvænan og bíllausan lífsstíl í hverfinu.

Previous
Previous

Orustustaðir